Hátt í hundrað þúsund fögnuðu heimkomu norska landsliðsins

Norska karlalandsliðið í fótbolta kom til Noregs frá Bandaríkjunum á sjötta tímanum í dag.Þrátt fyrir að Norðmenn hafi tapað 2-1 fyrir Englandi í framlengdum leik í átta liða úrslitum á laugardagskvöld hefur árangurinn vakið mikið þjóðarstolt meðal Norðmanna. Fótboltaæði hefur gripið um sig í Noregi síðustu vikur og þegar leikmennirnir sneru heim í dag var þeim fagnað eins og þjóðhetjum.Við komuna til Óslóar héldu leikmennirnir beint í konungshöllina þar sem Haraldur Noregskonungur og konungsfjölskyldan tóku á móti þeim.Norska landsliðinu var fagnað sem þjóðhetjum við heimkomuna í dag eftir tap gegn Englandi á HM á laugardag. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi safnast saman fyrir framan konungshöllina í Ósló til að taka á móti liðinu.Gríðarlegur mannfjöldi hefur safnast saman fyr
Hátt í hundrað þúsund fögnuðu heimkomu norska landsliðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd