Laxveiðisumarið lofar góðu í Elliðaánum

Aldrei hafa jafn margir laxar gengið í Elliðaár og göngumet var sett í gær þegar tæplega sex hundruð laxar renndu sér í gegnum teljarann á tólf klukkustundum.Teljarinn var settur upp árið 1989.Þetta lofar því góðu fyrir laxveiðisumarið í Elliðaánum en það hefur farið hægt af stað víða á landinu. ELLIÐAÁRNAR SKERA SIG ÚR Árleg vöktun á laxgengi í Elliðaánum hefur verið frá árinu 1989.Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur, fylgist vel með talningunni og sá í gær í hvað stefndi.„Skemmtilegu fréttirnar eru þær að það er göngumet á sólarhringsgrunni.“Talningin fer þannig fram að laxarnir renna sér í gegnum teljara, sem er í ánni. Laxarnir eru myndaðir og stærðarmældir og Jóhannes segir að stærstu laxarnir séu um 90 cm langir.„Við erum að tala um að á hálfum sólarhring var að meðaltali einn lax
Laxveiðisumarið lofar góðu í Elliðaánum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd