Útlit er fyrir rigningarveður á höfuðborgarsvæðinu út vikuna en sól og blíðu á Austurlandi. Nokkuð grátt hefur verið yfir suðvesturhorninu og vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu. Þá hefur nokkur rigning verið á vesturhluta landsins en talsvert þurrara fyrir austan. Veðurfræðingur segir allt stefna í að besta veðrið verði á Suðaustur- og Austurlandi um helgina.