Sólmyrkvinn verður vonandi góð landkynning til framtíðar segir formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu, gott hefði þó verið að fá uppgrip sem honum fylgja utan háannatíma.Hótel eru mikið bókuð um allt land vegna almyrkvans 12. ágúst. Margir krossa fingur með að veður verði gott en formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu hefur ekki áhyggjur af afbókunum verði spáin slæm því komið sé fram yfir afbókunarfrest.„Það er náttúrlega mikil eftirspurn eftir gistingu á þessum tíma, ef við tölum um þetta sem viðburð þá er þetta náttúrulega bara einstakt og mikil jákvæðni í kringum þetta. Svona landkynning hefur vonandi framtíðaráhrif á aukna eftirspurn til landsins,“ segir Björgvin Jóhannesson, formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. KOMIÐ FRAM YFIR AFBÓKUNARFREST Eftirspurnin er