Úrkoma næstu daga langt yfir meðaltali — gæti sést til sólar í vikulok

Úrkomumagn næstu tíu daga gæti orðið allt að nífalt það sem gerist í meðalári að jafnaði á tíu daga tímabili á þessum árstíma. Veðurfræðingur segir besta veðrið áfram á Austurlandi. Mest eigi eftir að rigna á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum en þó einnig á höfuðborgarsvæðinu.Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir veðurspána vera nokkuð eindregna næstu daga.„Það ætlar að hreiðra um sig háþrýstisvæðið hérna fyrir sunnan landið. Þetta er frekar óvenjulegur staður en fyrir vikið beinir hæðin til okkar bæði röku og hlýju lofti til landsins.“Einar segir austurhelming landsins verða að mestu leyti lausan við úrkomuna. Þar fái menn hlýindin beint í æð.Úrkoman verður mest á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, segir Einar. Samkvæmt Evrópsku reiknimiðstöðinni er gert ráð fyrir að úrkom
Úrkoma næstu daga langt yfir meðaltali — gæti sést til sólar í vikulok

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd