Minniháttar umferðarslys í Kömbunum

Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið voru kölluð til vegna minniháttar umferðarslyss ofarlega í Kömbunum í kvöld þegar bíll valt utan vegar. Engin alvarleg slys urðu á fólki.Þetta staðfestir Bjarki Oddsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.Bjarki segir unnið að því að ná bílnum upp á veginn. Hann segir fjölmennt viðbragðslið hafa verið kallað til, fyrst og fremst vegna lélegs skyggnis og mikillar þoku á svæðinu.Einhverjar tafir gætu orðið á umferð um Kambana á meðan unnið er á slysstað, segir Bjarki.
Minniháttar umferðarslys í Kömbunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd