Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að Íranar séu að eigin sögn búnir að loka Hormússundi. Hann segir að Bandaríkin muni taka sundið yfir og innheimta þóknun fyrir að sjá um það. Þá myndu Bandaríkjamenn aftur stöðva umferð um íranskar hafnir.Trump ræddi fyrst um yfirtökuna í símaviðtali á sjónvarpsstöðinni Fox, án þess að útskýra hvernig hún færi fram. Hann sagði eftir það á Truth social að Hormússund væri opið, þrátt fyrir að gögn bendi til þess að umferð um sundið hafi minnkað verulega. Íranar lýstu yfir lokun sundsins í gær. „Við komum aftur á hafnbanninu á Íran, sem heitir því nafni því það kemur aðeins í veg fyrir að írönsk skip geti komið og farið,“ sagði Trump.Hann segir að öll önnur lönd megi nýta sér sundið og Bandaríkin verði héðan í frá verðir Horm