Halldór Snær Georgsson sneri aftur í mark KR í gær er liðið vann 5-2 sigur á ÍBV. Sigurpáll Sören Ingólfsson varði mark KR-inga í leiknum þar áður, sem var gegn Þór, og enduðu leikar 3-3. Halldór hafði staðið á milli stangana í öllum leikjum KR þar áður, að fyrsta leik utanskyldum þegar Arnar Freyr Ólafsson meiddist alvarlega. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður í viðtali eftir leik út í markvarðarbreytinguna.