Landssamband eldri borgara mótmælir harðlega komugjaldi í sjúkraþjálfun. Aukin gjaldtaka á viðkvæman hóp, segir formaður Landssambandsins.Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að sérstakt komugjald verði sett á komu til sjúkraþjálfara, talþjálfara og iðjuþjálfa. Almennt komugjald verður 1500 krónur en eldri borgarar greiða 1000 kr. og öryrkjar 500. Þessu mótmælir Landssamband eldri borgara harðlega og segir stóran hóp með tekjur undir lágmarkstaxta á vinnumarkaði: „Það er á milli átta til tíu þúsund manns sem eru með heildartekjur undir þessum lágmarkstaxta sem á að borga 18 ára unglingi á vinnumarkaði. En þetta er bara aukin gjaldtaka á hóp þar sem margir hafa ekki tök á að bæta þessu við sig,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara.Björn hefur miklar áhyg