Garðabær hefur óskað eftir tilboðum í eftirlitsverk á Arnarneshálsi vegna fyrirhugaðra framkvæmda á svæðinu. Í tilkynningu á Útboðsvefnum segir að verkið feli í sér gatna- og stígagerð auk lagnavinnu vegna uppbyggingar í nýju hverfi.Til stendur að byggja nýtt hverfi í landi Garðabæjar, á mörkum sveitarfélagsins og Kópavogs. Hverfið mun heita Arnarland. Skipulagssvæðið er um 9 hektarar að stærð og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs.Á heimasíðu verkefnisins kemur fram að í deiliskipulagstillögu hverfisins sé gert ráð fyrir um 450 íbúðum, ýmissi nærþjónustu og heilsuklasa þar sem fjölbreytt fyrirtæki tengd heilsu og hátækni geti haft aðsetur.Gatnagerð á að vera lokið 1. apríl