Minnst 25 þjóðarleiðtogar í bandalagi hinna viljugu - þjóðabandalagi til stuðnings Úkraínu í stríðinu við Rússa, eru komnir til Parísar til að ræða um stríðið og beita þrýstingi til að koma á vopnahléi og nýjum viðræðum. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tekur einnig þátt í fundinum. Ísland er hluti af þessu bandalagi en enginn fulltrúi héðan situr fundinn. TILBÚIN Í BLÓÐSÚTHELLINGAR TIL AÐ VERJA EVRÓPU Emmanuel Macron forseti Frakklands sagði í ávarpi til hersins í dag að Evrópa væri að verða afl sem gæti varið sig sjálft. „Skilaboðin sem við sendum heiminum eru þessi: Já, við stefnum að friði. Já, við metum frelsi og að lög séu virt. Og já, við erum tilbúin til að verja það. Alltaf, jafnvel þó að það kosti blóðsúthellingar ef nauðsyn krefur,“ sagði hann.Leiðtogarnir hyggjast meðal an