Byggja upp ferðaþjónustu í flugturni

Mikil uppbygging er fyrirhuguð á flugvellinum á Siglufirði. Viking Heliskiing keypti flugturn, þjónustuhús og tækjahús af bænum á 12 milljónir króna. Lengi hefur staðið til að nýta flugvöllinn á Siglufirði betur. Haldin var hugmyndasamkeppni 2021 og nú eru hjólin farin að snúast.Helgi Jóhannsson formaður bæjarráðs í Fjallabyggð segist mjög spenntur fyrir tilvonandi uppbyggingu hjá Viking Heliskiing. Hann segir að flugvöllurinn geti áfram þjónað sem vara- og neyðarflugvöllur eins og hann hefur gert undanfarin ár.
Byggja upp ferðaþjónustu í flugturni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd