Fjögur kynferðisbrot eru til rannsóknar eftir útihátíðir um helgina.Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot tengd bæjarhátíðinni Kótilettunni á Selfossi aðfaranótt sunnudags og lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar eitt mál á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal.Þetta kemur Drífu Snædal talskonu Stígamóta ekki á óvart.„Það er alltaf hrikalega svekkjandi þegar svona mál koma upp en því miður ekki óvænt. Við höfum hins vegar orðið vör við það hjá Stígamótum að það er algengara að þolendur leiti aðstoðar seinna. Það má því leiða að því líkum að það séu fleiri kynferðisbrot en komast í fréttirnar, því miður,“ sagði Drífa í þættinum Fram undan á Rás 2.Eitt sinn hafi þessi mál helst verið tengd við verslunarmannahelgina en það sé breytt.„Það er svo ofboðslega mikið af hátíðum