Þrír af hverjum fjórum umsækjendum um alþjóðlega vernd eru frá Úkraínu

Úkraínumenn eru langfjölmennastir í hópi þeirra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd það sem af er þessu ári líkt og verið hefur frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst 2022.Fyrstu sex mánuði ársins bárust 675 umsóknir um alþjóðlega vernd, 74% þeirra frá Úkraínubúum. Fólk frá Venesúela var næstfjölmennast, 11%, og þriðji fjölmennasti hópurinn frá Palestínu, 6%.Umsóknir um alþjóðlega vernd hafa aldrei verið fleiri en 2022 þegar þær voru 4.493. Þeim hefur fækkað mikið síðan þá. Umsóknir á fyrri hluta þessa árs eru þó fleiri en á sama tíma í fyrra þegar 605 sóttu um alþjóðlega vernd.
Þrír af hverjum fjórum umsækjendum um alþjóðlega vernd eru frá Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd