Brotist var inn í kirkju Fíladelfíusafnaðarins við Hátún í Reykjavík í gær. Útihurð var spennt upp og einhverju smáræði stolið að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns.Innbrotið uppgötvaðist rétt eftir klukkan 18 í gær.Ásmundur segir að engar skemmdir hafi verið unnar. Málið sé í rannsókn en enginn sé grunaður um verknaðinn.