Ekki stökkva í Eyvindará

Vorið var seint á ferðinni austanlands en nú er sumarið skollið á af fullum þunga. Á Egilsstöðum er vinsælt að stökkva út í Eyvindará á góðviðrisdögum en nú er það ekki ráðlegt því áin er mjög straumhörð sökum mikilla leysinga. Hún er líka kaldari en vanalega á þessum árstíma.„Það er svona stika og varnarskilti þarna en fólk verður að átta sig á því að það er alfarið á eigin ábyrgð. Það er mikilvægt að fólk hafi vit fyrir krökkunum sínum, fylgi þeim og fylgist með þeim því það hefur skollið hurð nærri hælum þarna í ánni. Það er mjög mikilvægt að menn viti hvað þeir eru að gera og fari varlega,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi. Áin er varasöm og Dagmar Ýr ítrekar mikilvægi þess að fara varlega: „Ég ráðlegg fólki alfarið frá því að hoppa í Eyvindarána eins og hún er
Ekki stökkva í Eyvindará

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd