Hafa fengið á áttunda hundrað fyrirspurna vegna hvalveiða við Ísland

„Við höfum á undanförnum vikum fengið meira en sjö hundruð fyrirspurnir og kvartanir vegna hvalveiða við Ísland,“ segir Jarle Hetland, yfirmaður samskipta hjá ESA, eftirlitstofnun EFTA í samtali við RÚV. „Þessar orðsendingar koma hvaðanæva að úr heiminum og við lítum á hverja og eina þeirra sem sjálfstæða fyrirspurn, jafnvel þótt margar séu keimlíkar.“ESA sá í dag ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fyrirspurnirnar séu varðandi hvalveiðar á Íslandi og meðferð tilkynntra atvika sem tengist velferð dýra á núverandi tímabili hvalveiða.„Hlutverk ESA er að fylgjast með því að EES-samningurinn og löggjöf sem felld er inn í samninginn séu virt,“ segir í tilkynningunni frá ESA. „Eins og fram kemur í ákvörðun stofnunarinnar frá 2024 er engin EES-löggjöf um velferð dýra sem gild
Hafa fengið á áttunda hundrað fyrirspurna vegna hvalveiða við Ísland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd