Hollenski dómarinn Rob Dieperink er látinn, aðeins 38 ára að aldri.Hollenska knattspyrnusambandið staðfesti andlátið en dánarorsök hefur ekki verið gefin upp. Dieperink dæmdi sinn síðasta leik á laugardag.Dieperink átti upphaflega að starfa á HM í sumar en FIFA tók hann af lista dómara eftir að hann var handtekinn í London í apríl vegna gruns um kynferðisbrot gegn unglingspilti.