Af öryggisástæðum mega börn ekki lengur vera fylgdarlaus í útiklefa Laugardalslaugar, Vesturbæjarlaugar og Sundhallarinnar í Reykjavík. Útiklefar eru aðskildir öðrum búningsklefum í þessum laugum og þar hefur starfsfólk ekki fasta viðveru.Frá og með 1. júlí er 18 ára aldurstakmark í útiklefa Laugardalslaugar og Vesturbæjarlaugar nema börn og ungmenni séu í fylgd með fullorðnum. Aldurstakmarkið tekur gildi í Sundhöllinni í Reykjavík þegar viðhaldi búningsklefa lýkur.„Þetta er með engum hætti gert til þess að takmarka aðgang ungmenna að laugunum heldur fyrst og fremst til að tryggja öryggi þeirra og jákvæða upplifun þegar þau heimsækja sundlaugarnar í Reykjavík,“ segir Lína Petra Þórarinsdóttir, forstöðumaður markaðsmála á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar.„Það er ekki hægt að try