Fannar lék sinn fyrsta leik í Bestu - Þegar búið að selja hann

Fannar Heimisson lék í gær sinn fyrsta leik í Bestu deildinni þegar hann kom inn á sem varamaður hjá KR sem mætti ÍBV. Fannar er sóknarmaður sem fæddur er 2011 og er þegar búið að selja hann til Nordsjælland. Hann mun ganga í raðir danska félagsins næsta sumar þegar hann hefur náð aldri til að mega skipta til félagsins. Danska félagið er sagt hafa greitt mjög háa upphæð til að tryggja sér krafta Fannars.
Fannar lék sinn fyrsta leik í Bestu - Þegar búið að selja hann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd