Hryðjuverkalögregla rannsakar morð á fyrrverandi ráðherra

Breska hryðjuverkalögreglan stýrir nú rannsókninni á Ann Widdecombe, fyrrverandi þingmanni og ráðherra. Shabana Mahmood innanríkisráðherra Bretlands tilkynnti þetta í færslu á X og sagði þetta gert vegna nýrra upplýsinga og sönnunargagna.Widdencombe fannst látin á heimili sínu á fimmtudag með alvarlega áverka. Lögreglan í Devon og Cornwall annaðist rannsóknina framan af og tilkynnti á laugardag að 28 ára gamall breskur maður hefði verið handtekinn í Yorkshire grunaður um morðið. Þá sagði lögreglan ekkert benda til þess að pólitískar ástæður lægju að baki morðinu.Nú virðast komnar fram upplýsingar sem benda til annars en Mahmood tilgreinir ekki hvers eðlis upplýsingarnar eru. Í yfirlýsingu frá hryðjuverkalögreglunni segir að rannsóknin hafi reynst flókin og því sé hún að taka við henni.Widd
Hryðjuverkalögregla rannsakar morð á fyrrverandi ráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd