Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segri fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Lofslagsbreytingar og þurrkar spila inn í aukna hlýnun jarðar en erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða.