Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur, sem er einnig kenndur við rokksveitina Maus, segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður líti í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður.