Beitti konu kyrkingartaki og öðru ofbeldi við nauðgun

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Finnboga Þór Gunnarsson í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Refsing hans var milduð vegna þess að nærri fjögur ár liðu frá því hann braut af sér þar til ákæra var gefin út.Sannað þótti að Finnbogi hefði nauðgað konu sem hann fór heim með í maí 2022. Þau höfðu þekkst í nokkra mánuði.Konan sagði að þau hefðu byrjað að stunda kynlíf á eðlilegan hátt en að Finnbogi hefði síðan farið að beita hana ofbeldi, meðal annars með því að taka hana föstu kyrkingartaki sem hún taldi hafa varað í 40 sekúndur. Meðan á því stóð átti hún erfitt með andardrátt.Hún sagðist hafa reynt að stöðva hann, meðal annars hafa slegið hann ítrekað meðan á hálstakinu stóð, en hann haldið áfram.Finnbogi neitaði sök og sagðist hafa haft samþykki konunnar fyrir öllu, þar á meðal því að hann he
Beitti konu kyrkingartaki og öðru ofbeldi við nauðgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd