Börn yngri en þrettán ára ættu aðeins að vera á samfélagsmiðlum undir eftirliti foreldra, segir sérfræðingahópur sem skilaði af sér skýrslu í Brussel í dag. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að leggja fram tillögu um þetta í haust en skiptar skoðanir eru innan aðildarríkja.„Þetta snýst ekki hvort börn komist að samfélagsmiðlum, heldur hvort og hvenær samfélagsmiðlar komast að börnum,“ sagði Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í morgun, þegar hún tók við skýrslu sérfræðingahópsins.Hópurinn leggur til að börnum yngri en þriggja ára verði alfarið haldið frá samfélagsmiðlum, og til tólf ára aldurs fái þau aðeins að nota slíka miðla undir handleiðslu. EKKI SAMSTAÐA INNAN RÍKJAHÓPS EVRÓPUSAMBANDSINS Von der Leyen sagði í morgun að framkvæmdastjórnin myndi