Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað í um klukkustund síðdegis í gær vegna dróna sem sást á flugi skammt frá flugvellinum.Vísir greindi fyrst frá en Viðar Jökull Björnsson, flugvallarstjóri Reykjavíkurflugvallar, segir í samtali við fréttastofu að flugmenn Icelandair, sem voru að koma inn til lendingar, hafi tilkynnt flugumferðarstjórum um dróna sem flaug langt yfir leyfilegri hæð.Flugumferðarstjórar hafi lokað flugbrautinni sem liggur í norður-suður og tilkynnt lögreglu um málið. Dróninn sást ekki aftur og var flugbrautin opnuð aftur. Viðar segir lokunina ekki hafa haft mikil áhrif á flugumferð.Hann segir atvik sem þessi sjaldgæf en að aukning drónaflugs sé áhyggjuefni.Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir málið í rannsókn og