Íslensk tónlist á undir högg að sækja á Spotify

„Íslendingar eru ekki eins duglegir að streyma íslenskri tónlist eins og til dæmis Danir að streyma danskri tónlist eða Svíar að streyma sænskri tónlist og svo framvegis. Við vildum athuga hvort streymisveitan gæti lagt sitt á vogarskálarnar og kannski haft íslenska tónlist sýnilegri fyrir Íslendinga á veitunni.“Þetta segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs, félagasamtaka tón- og textahöfunda á Íslandi. Hún var hluti sendinefndar hagsmunaaðila í íslenskum tónlistariðnaði sem hélt til Svíþjóðar í apríl á fund með fulltrúum streymisveitunnar Spotify. Markmiðið var að styrkja stöðu íslensks tónlistarfólks og sýnileika þess á veitunni.Guðrún Björk sagði frá fundinum í Fram undan á Rás 2 í morgun.Rúm 87% af tekjum af sölu á íslenskri tónlist fóru til streymisveitna á síðasta ári
Íslensk tónlist á undir högg að sækja á Spotify

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd