Olíuverð hækkaði töluvert á mörkuðum í morgun vegna aukinnar óvissu um opnun Hormússunds. Átök milli Írana og Bandaríkjanna hafa stigmagnast og segjast Íranar nú hafa lokað sundinu. Bandaríski herinn segir það ekki rétt.Bandaríkjamenn gerðu árásir í gær og nótt í þeim tilgangi að draga úr getu Írana til að ráðast á olíuskip í Hormússundi. Íranar svöruðu með árásum á bandarískar herstöðvar í öðrum Persaflóaríkjum. Gögn sýna að aðeins fimm skip hafi farið um Hormússund í gær og að ekkert skip hafi farið þar um frá því í gærkvöldi.Olíuverð hafði lækkað mikið eftir að viljayfirlýsingin um vopnahlé var undirrituð 17. júní. Í morgun hækkaði verðið hins vegar um rúmlega 4% á mörkuðum og bætist það við hækkun sem þegar hafði átt sér stað um helgina. Verðið er nú upp undir 80 dollarar á tunnuna.Mei