Refsa rússneskum leyniþjónustumönnum fyrir netárásir

Yfirmenn í leyniþjónustu rússneska hersins, GRU, eru meðal þeirra sem Evrópusambandið og Bretland hyggjast beita refsiaðgerðum vegna netárása á Vesturlönd. ESB og bresk stjórnvöld kynntu refsiaðgerðirnar í dag. Þau segja að Rússarnir hafi staðið fyrir margháttuðum netárásum á evrópsk ríki síðustu árin. Þeirra á meðal hafi Rússarnir ráðist á innviði í Póllandi sem hefði getað valdið því að hálf milljón íbúa hefði orðið rafmagnslaus um hávetur.Evrópusambandið hyggst refsa níu einstaklingum og fjórum stofnunum og samtökum. Bretar ætla að beita 24 einstaklinga refsingum. Þeirra á meðal er miðstöð 16 hjá FSB, rússnesku leyniþjónustunni, sem hefur lengi verið sökuð um netárásir á Vesturlönd.
Refsa rússneskum leyniþjónustumönnum fyrir netárásir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd