Þrjár framleiðslulotur af nautakjötsréttinum Bapao beef frá Tjendrawasih hafa verið innkallaðar þar sem óvíst er að kjötið sé fyllilega öruggt til neyslu. Innköllunin nær til umbúða með best fyrir dagsetningarnar 6.11.2026, 9.1.2027 og 12.2.2027.Vörurnar voru innkallaðar eftir að tilkynning barst úr hraðviðvörunarkerfi RASFF um hættuleg matvæli og fóður. Matvælastofnun segir að neytendur eigi að farga vörunni eða skila henni í búðina og fá endurgreidda. Ekki á að neyta hennar.Umbúðir réttarins.Aðsend