Brotist inn hjá Fíladelfíu

Brotist var inn í kirkju Fíladelfíu við Hátún í Reykjavík í gær. Útihurð var spennt upp og einhverju smáræði stolið, að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Innbrotið uppgötvaðist skömmu eftir klukkan 18 í gær og var tilkynnt lögreglu.Ásmundur segir að ekki sé grunur um að miklu hafi verið stolið og að engu hafi verið rústað. Hann segir málið í rannsókn og enginn hafi verið handtekinn eða hafi stöðu grunaðs á þessu stigi.
Brotist inn hjá Fíladelfíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd