Vera Helgadóttir greindist með bráðahvítblæði árið 2023, þá 23 ára gömul og nýbökuð móðir. Þegar hún var í krabbameinsmeðferð dvaldi hún löngum stundum í einangrun á blóðkrabbameinslækningadeild 11EG. Þar komst hún að því að það sem flestir taka sem sjálfsögðum hlut getur orðið að stóru atriði þegar maður er lokaður inni, veikur og háður öðrum um nánast allt.