Landsmenn geta búið sig undir rigningu í dag, ekki síst vestan til á landinu. Austfirðingar geta þó vænst þess að þar þorni á morgun en í millitíðinni fá þeir allt að 22 stiga hita í dag.Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu í dag. Rigning með köflum, einkum vestantil á landinu. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast á Austfjörðum.Að mestu þurrt suðaustan- og austanlands á morgun, annars svipað veður en dregur úr vætu síðdegis.