Kafarar kortleggja hafsbotn í Siglufirði

Leitin að flökunum og kortlagningin á hafsbotninum í Siglufirði er samstarf rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Erlends Guðmundssonar kafara.Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur og kafari, segir verkefnið yfirgripsmikið:„Verkefnið snýst í grófum dráttum um að kortleggja allan Siglufjörð og reyna að fá yfirlit yfir þær minjar sem liggja á hafsbotninum og tengjast sögu Siglufjarðar.“Erlendur Guðmundsson, einn af þeim sem leiðir verkefnið, er reynslumikill kafari og hafði áður fundið 9 skipsflök í Siglufirði og það tíunda fannst nýverið. Þá hefur fundist brak úr byggingum sem talið er að stórt snjóflóð hafi sópað á haf út árið 1919. Átta fórust í snjóflóðinu og stærsta fiskmjölsverksmiðja landsins eyðilagðist.Miklar fornleifar finnast í og við
Kafarar kortleggja hafsbotn í Siglufirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd