Úr Europa-byggingunni í Brussel.EPA / OLIVIER HOSLETUtanríkisráðherrar Evrópusambandsins ætla að ræða í dag um mögulegt bann á innflutningi á vörum frá landtökubyggðum Ísraela í Palestínu. Landtökubyggðir Ísraela á Vesturbakkanum eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.Í síðustu viku samþykkti írska þingið lög um bann á innflutningi frá landtökubyggðum Ísraela. Þá hafa fleiri ESB-ríki á borð við Holland og Spán haft til skoðunar eða innleitt hömlur. Ríkisstjórn Noregs hefur einnig lagt til svipaðar aðgerðir eftir að þingsályktunartillaga um málið var samþykkt.