Tvær slökkviflugvélar voru kallaðar til Fontainebleau-skógar eftir að skógareldur kviknaði síðdegis í gær og breiddist hratt út. Skógurinn er um 60 kílómetra suðaustur af höfuðborginni París.Yfirvöld sögðu í nótt að átta ferkílómetrar hefðu brunnið. Ekki var búið að ná tökum á eldinum þegar áhafnir slökkviflugvélanna þurftu að hætta slökkvistörfum við rökkur. Um 400 slökkviliðsmenn hafa unnið að slökkvistörfum.Eric Brocardi, talsmaður landssambands slökkviliðsmanna í Frakklandi, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slökkviflugvélar hafa verið sendar í héraðið. Þær sinna jafnan slökkvistörfum í þurrari og heitari héruðum í suðurhluta landsins.Rýma þurfti 15 heimili í þorpinu Vaudoue í grennd skógarins. Ef slökkviflugvélanna hefði ekki notið við hefði þurft að rýma fleiri þorp, að sögn Olivie