Einn var drepinn og fjórir særðust í árás Bandaríkjahers á dælustöð í suðvesturhluta Írans í nótt. Frá þessu greina íranskir ríkismiðlar.Bandaríkjaher hóf í kvöld árásir að nýju á skotmörk í Íran, annað kvöldið í röð. Stjórnstöð hersins segir þær gerðar til þess að veikja getu Írana til að ráðast á herskip í Hormússundi.Skömmu eftir að tilkynning Bandaríkjahers var birt fordæmdu írönsk stjórnvöld árásir Bandaríkjanna á Íran síðustu daga. Þau segja árásirnar hafa gert að engu þann árangur sem náðst hafi í viðræðum síðustu mánaða.„Þessar villimannslegu árásir eru ekkert annað en stórfellt brot á grundvallarreglum stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og einnig alvarleg ógn við frið og öryggi á heimsvísu,“ segir í yfirlýsingu íranska utanríkisráðuneytisins.Íranar saka bandarísk stjórnvöld þar að a