Búist er við miklum töfum við landamæraeftirlit við Ermarsundið milli Bretlands og Frakklands næstu daga.Nýlega voru teknir í notkun fingrafaraskannar auk andlitsgreiningartækni við landamæraeftirlit að kröfu Evrópusambandsins. Landamæraeftirlitskerfið nefnist Entry exit og hefur verið tekið í notkun hér á landi.Bretar munu flykkjast yfir Ermarsundið næstu daga nú þegar sumarleyfistímabilið er að hefjast og hafa þingmenn varað við ringulreið og löngum biðröðum, slaki Evrópusambandið ekki á kröfum sínum.Evrópusambandið segir það þó ekki vera á dagskrá. Bæði frönsk og bresk yfirvöld hafa samþykkt að fjölga starfsmönnum við landamæraeftirlit tímabundið. FJÖGURRA OG HÁLFS TÍMA BIÐ Í MAÍ Hafnaryfirvöld í Dover segja að samhliða skólafríi um miðjan maí hafi biðin í landamæraeftirlitinu verið