„Þegar lúpínan blómstrar á sumrin hefst umræða um ágengni hennar og jafnvel lýti á landinu. Þarna koma oft fram sterkar skoðanir þar sem ekki er alltaf stuðst við rannsóknir,“ segir Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri hjá Landi og skógi. Þar hefur hann umsjón með þjóðskógum og svæðum sem mörg hafa verið grædd upp í byrjun með bláblómstrandi rótsterkri jurt.