Verja 250 milljónum punda til að vernda samfélag gyðinga

Bresk stjórnvöld hyggjast verja yfir 250 milljónum punda, sem samsvarar vel yfir 40 milljörðum króna, á næstu þremur árum til að verja samfélag gyðinga þar í landi.Féð á meðal annars að nýta til að fjölga lögreglumönnum í Englandi og Wales um 500. Stjórnvöld ætla að auka öryggisgæslu í gyðingahverfum, við skóla og bæna- og samkomuhús.Nokkrar árásir hafa að undanförnu verið gerðar í landinu sem beinast að samfélagi gyðinga. Í mars var kveikt í fjórum sjúkrabílum sjálfboðaliðasamtaka gyðinga í London. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar í Bretlandi var hækkað eftir stunguárás sem beindist gegn gyðingum í London í apríl. Þá var árás gerð á bænahús gyðinga í Manchester í október í fyrra. Árásin var gerð á heilagasta degi gyðinga, Yom Kippur.„Aukið gyðingahatur sem við höfum horft upp á á síð
Verja 250 milljónum punda til að vernda samfélag gyðinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd