Lögregluþjónn rannsakar aðstæður á vettvangi.AP / Sakchai Lalit27 hið minnsta létu lífið þegar eldur braust út á bar í norðurhluta Bangkok, höfuðborgar Tælands, fyrr í dag. Viðbragðsaðilar fengu tilkynningu um brunann um miðnætti að staðartíma.Sjónarvottar lýsa því að reykur hafi risið úr lekaliða nálægt tónleikasviði staðarins. Þá hafi rafmagninu slegið út og sprenging orðið í kjölfarið. Búið er að ná tökum á eldinum.