Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur undanfarið kynnt nýtt verklag varðandi hættulegt íbúðarhúsnæði. Því var veittur aðgangur að íbúðarhúsnæði í fyrsta skipti með dómsúrskurði vorið 2025. Nú eru því skýrari heimildir fyrir því að skoða íbúðarhúsnæði ef rökstuddur grunur er um að öryggi fólks sé ekki tryggt.Slökkvilið hefur haft heimild til að athuga brunavarnir í atvinnuhúsnæðum án dómsúrskurðar. Fyrir úrskurðinn hafði slökkviliðið litla getu til þess að bregðast við ábendingum um íbúðarhúsnæði. Athuganir snúa helst að leiguhúsnæði.„Við erum ekki að fara í íbúðarhúsnæði þar sem þú býrð með þínu fólki og skoða hvernig þú hefur það heima hjá þér en þegar þú ert farinn að leigja fólki, þú ert farinn að bera ábyrgð á öðrum, þú ert farinn að fá tekjur, þá átt þú samkvæmt öllum lögum og reglum