„Ég trúi ekki á tískubönn. Þú getur púllað nánast hvað sem er ef þú berð það með sjálfstrausti,“ segir 23 ára gamli fatahönnuðurinn Stella Michiko. Stella lýsir sér sem eilífum safnara og starfar sömuleiðis hjá tískuversluninni Aftur sem hún elskar. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá LHÍ í vor og tískan er órjúfanlegur hluti af hennar tilveru.