Skógarkerfillinn er kominn til að vera. Þótt plantan sé enginn aufúsugestur meðal borgarbúa veldur hún ekki ama hjá skógræktarfólki í Esjunni þar sem ýmislegt forvitnilegt leynist undir kerfilsbreiðunni.Skógarkerfillinn er kominn til að vera. Þótt plantan sé enginn aufúsugestur meðal borgarbúa veldur hún ekki ama hjá skógræktarfólki í Esjunni þar sem ýmislegt forvitnilegt leynist undir kerfilsbreiðunni.Skógarkerfillinn dreifir sér hratt um landið og hafa sveitarfélög gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við útbreiðslu hans. Það er hægara sagt en gert enda harðger og ágeng planta sem á það til að taka yfir annan gróður. Hún sómir sér vel innan um annan gróður, til að mynda lúpínu sem klýfur þjóðina í tvær fylkingar ekkert síður en Evrópusambandsaðild. Í Reykjavík hefur verið lagt til atl