Gullregnið hjá Sólveigu Ósk, hárgreiðslumeistara og Gísla Þór, manni hennar er glæsilegt í alla staði og hefur aldrei blómstrað eins mikið og í sumar.„Þetta er bara tré sem við settum niður í kringum 2006 og það hefur bara aldrei verið svona fallegt eins og núna. Það er algjört augnakonfekt,” segir Sólveig.Gullregn hafa sjaldan eða aldrei verið eins falleg víða á Suðurlandi eins og í sumar enda blómastra þau mjög mikið. Eitt af trjánum er á Selfossi við þjóðveg númer eitt og er mikið myndað enda stórglæsilegt.Hefur það aldrei blómstrað svona mikið eins og núna?„Ekki svona en það hefur einu sinni verið alveg svakalega fallegt áður. Það er rosalega gaman þegar þetta er svona fallegt,” segir Sólveig.Sólveig segir Gullregnið vekja mikla athygli enda sé það mikið myndað enda búa þau Gísli Þór v