Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust fleiri en tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins þangað sem fórnarlömbin voru flutt.