Tilkynningum til barnaverndar fækkar á milli ára

Tilkynningum til barnaverndar fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við fyrri ár. Alls bárust 4.812 tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er 4,1% fækkun frá sama tímabili árið 2025.Þetta kemur fram í nýrri samantekt Barna- og fjölskyldustofu. TILKYNNINGUM UM KYNFERÐISOFBELDI FJÖLGAR Á MILLI ÁRA 38% allra þeirra tilkynninga sem bárust til barnaverndar á tímabilinu voru vegna vanrækslu á börnum. Næst flestar tilkynningar bárust vegna áhættuhegðunar barns eða um 35%. Tilkynningum um vanrækslu fækkar þó frá árinu 2025 en öðrum tilkynningum fjölgar.Tilkynningum um líkamlegt ofbeldi fjölgar en alls bárust 60 fleiri tilkynningar á fyrstu mánuðum ársins í ár en á sama tíma 2025. Tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi fjölgar sömuleiðis, en þeim fjölgar úr 194 í 214 á milli
Tilkynningum til barnaverndar fækkar á milli ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd