Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu Kópavogsbæjar um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna verks við aðalvöll íþróttafélagsins HK í Kórahverfi í Kópavogi.Þar stendur til að reisa áhorfendastúku með þjónustubyggingu á tveimur hæðum og koma fyrir fullbúnum upphituðum gervigrasvelli með vallarlýsingu og öllu sem því fylgir.Samningurinn hljóðar upp á rúma tvo milljarða og hugðist Kópavogsbær ganga til samninga við sigurvegara útboðs vegna verksins, ÞG verktaka. KÆRÐU INNKAUPAFERLI KÓPAVOGSBÆJAR Útboðinu lauk um miðjan apríl. Tvö fyrirtæki tóku þátt, Ístak og ÞG verktakar. Þegar kunngjört var um sigurvegara útboðsins kærði Ístak innkaupaferli Kópavogsbæjar til kærunefndar útboðsmála og krafðist þess að ákvörðun bæjarfélagsins um að velja tilboð ÞG verktaka yrði felld úr gild