„Mikill sómi af hegðun ökumanna“

Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi segir búið að leysa úr vandanum á Suðurlandsvegi þar sem bíll með hjólhýsi í eftirdragi lenti utan vegar. Umferð inn í Reykjavík gangi vel.„Staðan er ágæt. Þetta mjakast allt saman og engar tilkynningar fyrir utan þessa tilkynningu sem kom áðan varðandi þennan bíl sem lenti þversum á Suðurlandsvegi skammt frá Litlu Kaffistofunni með hjólhýsi sem fór á hliðina. Það myndaðist smá umferðaröngþveiti í kringum það. En það er búið að greiða úr því og umferð gengur vel núna,“ segir Jón Þór.Fólk hafi hagað sér með sóma í umferðinni í dag.„Það hafa engar tilkynningar borist til lögreglu varðandi einhvers konar glafralegt aksturslag eða háskalegan framúrakstur. Þannig að það virðist bara vera mikill sómi af hegðun ökumanna eins og staðan er núna.“ HOLTAVÖRÐUHEIÐI
„Mikill sómi af hegðun ökumanna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd