Fleiri skjöl um dularfull flygildi birt: „Þessi ríkisstjórn mun leita sannleikans“

Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna birti fjórða bunkann af skjölum um dularfull flygildi á vefsíðu sinni í fyrradag.Skjölin má finna hér.Nýbirtu skjölin, sem eru 40 talsins, eru frá árunum 1948 til 2025 og innihalda skýrslur, myndbönd, hljóðupptökur og myndir sem tengjast óútskýrðum, óþekktum fyrirbærum í lofti. Í skjölunum má einnig finna skýrslur Pentagon, NASA, CIA og FBI. FLUGMAÐUR SEM LÉST VIÐ EFTIRFÖR Á FLYGILDI Meðal skjalanna er greining á dularfullum flygildum frá árinu 1949. Í greiningunni er vísað til þess að árið áður hafi flugmaður þjóðvarðarliðsins látið lífið í eftirför hersins á dularfullu flygildi.Í greiningunni kemur fram að rannsakendur hafi talið líklegast að flugmaðurinn hafi orðið fyrir súrefnisskorti og hrapað. Í síðustu talstöðvarsendingu hans á hann að hafa lýst f
Fleiri skjöl um dularfull flygildi birt: „Þessi ríkisstjórn mun leita sannleikans“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd